Leit

 ÍðorðEnskt íðorðNorskt íðorðSkilgreining íðorðs
aðalakrein--samfelld akrein vegar
aðalbraut--1 helsta leið 2 gata eða vegur þar sem umferðin nýtur forréttinda fram yfir umferð frá aðliggjandi brautum
aðalskipulag--skipulagsáætlun fyrir tiltekið sveitarfélag þar sem fram kemur stefna sveitarstjórnar um landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál í sveitarfélaginu.
aðalvegurprimary roadprimærvegráðandi vegur á vegamótum
aðalverktaki--verktaki sem felur öðrum verktökum, einum eða fleiri, að framkvæma hluta verks sem hann hefur tekið að sér
aðfangaeftirlit-råvarekontrollmælingar á tilteknum eiginleikum aðfanga og samanburður niðurstaðna við kröfur
aðfengin steypaready-mixed concrete-aðkeypt steinsteypa, nýlöguð
aðfyllingbackfillbakfyllingsá hluti vegfyllingar, sem leggst að öðru mannvirki
aðgerðarheflun--endurmótun rása og vegyfirborðs
aðkomuhornintersection anglekryssvinkelhornið sem vegirnir skerast undir
aðkomusteinnerratic, erratic blockflyttblokk, erratisk blokkstór steinn, sem jökull, jökulá eða ísjaki hefur flutt, þangað sem hann er
aðreinmerging lanepåkjøringsfeltakrein meðfram akbraut, til að auðvelda aðvífandi ökutækjum að komast inn í umferðarstraum
aðskilnaðurseparationseparasjonsundurgreining mismunandi þátta í blöndu byggingarefna
aðskilnaður kornastærðasegregationseparasjonþegar fjölstærða steinefni greinist eftir kornastærðum
aðsópssvæði--það svæði í grennd við snjóflóðafarveg sem skefur af inn á upptakasvæðið
afhendingarúttekt--úttekt mannvirkis fyrir afhendingu í rekstur
afhlaup-tenningathöfnin að virkja hvellhettur sprengiefnis í borholum.
afísingdeicing-eyðing íss eða snjóar með efnasamböndum
afkastageta--fjöldi ökutækja sem umferðarmannvirki getur annað á tímaeiningu
afkoma--mismunur á snjósöfnun að vetri og leysinga að sumri [jöklafræði]
  • 1 - 20